Liðsmenn Hróksins og KALAK standa nú fyrir III. Polar Pelagic-skákhátíðinni á Austur-Grænlandi og hefur skákgleðin verið við völd síðan á miðvikudag. Leiðangursmenn dvöldu fyrstu dagana í Kulusuk, næsta nágrannabæ Íslands, og stóðu fyrir kennslu og fjölteflum í grunnskóla bæjarins.
Er þetta 14. árið sem Hróksmenn og félagar standa í skákútbreiðslu á Grænlandi.
Leiðangursmenn eru Hrafn Jökulsson forseti Hróksins, Stefán Herbertsson formaður KALAK - vinafélags Íslands og Grænlands, og Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt.
Eftir vel heppnaða hátíð í Kulusuk lá leiðin til Tasiilaq, sem er höfuðstaður Austur-Grænlands, með um 2000 íbúa. Á laugardag heimsóttu leiðangursmenn til að mynda PITU-heimilið sem er rekið fyrir börn sem ekki geta verið hjá fjölskyldum sínum og fengu öll börnin gjafir frá Íslandi.
Hápunktur hátíðarinnar var Minningarmót Gerdu Vilholm í Tasiilaq nú á sunnudag. Gerda sem var einn helsti máttarstólpi samfélagsins í Tasiilaq lést í janúar, 73 ára að aldri. Hún opnaði og rak einu bókabúð Austur-Grænlands, sem jafnframt var griðastaður barnanna í bænum sem þangað komu daglega til að tefla.
Við setningu mótsins í Tasiilaq flutti Justus Hansen falleg minningarorð um Gerdu. Justus er þingmaður og varaborgarstjóri sveitarfélagsins Sermersooq, sem nær allt frá höfuðborginni Nuuk á vesturströndinni til allra byggða á austurströndinni. Hann lýsti mikilli ánægju með starf Hróksins og KALAK á Grænlandi, og mun beita sér fyrir því að skák verði meðal kennslugreina í skólum á Grænlandi.
Næstu daga munu leiðangursmenn kenna í grunnskólanum í Tasiilaq og heimsækja skóla fyrir ungmenni sem eru að snúa aftur á menntabrautina.