Sílóin sprengd á ný um helgina

Niðurrifs­fram­kvæmdir standa yfir við Sements­verk­smiðjuna á Akranesi.
Niðurrifs­fram­kvæmdir standa yfir við Sements­verk­smiðjuna á Akranesi. Ljósmynd/Akraneskaupstaður

Önnur tilraun verður gerð á morgun til að rífa niður fjóra leðjugeyma, eða síló, Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. 

Akraneskaupstaður hefur sent frá sér tilkynningu um aðgerðirnar, en fyrri niðurrifsaðgerðir á leðjugeymunum, sem fóru fram 29. desember, báru ekki árangur. Í stað þess að þeir hryndu lóðrétt til jarðar fóru þeir á hliðina en eru þó að hruni kom­nir. Falli síló­in gæti brak úr þeim þeyst út á nær­liggj­andi götu, Faxa­braut, og hef­ur hún því verið girt af. 

Frétt mbl.is: Faxabraut lokuð vegna mikillar hrunhættu

Faxabraut hefur verið lokuð síðan en stefnt er að því að opna götuna á ný þegar aðgerðum helgarinnar er lokið. Ef þau áform breytast verður send sérstök tilkynning þar um.

„Mjög mikilvægt er að bæjarbúar virði þau mörk sem sett hafa verið um vinnusvæðið og er gangandi og akandi vegfarendum ekki heimilt að fara um Faxabraut eins og staðan er núna,“ segir í tilkynningu frá bænum.

Þar segir enn fremur að verktaka sé ljóst að vanmat leiddi til þess að sprengihleðsla dugði ekki til að fella geymana í fyrstu atrennu. „Undanfarna daga hefur verið unnið að því að reikna út stöðugleika leðjugeymanna eins og þeir standa núna og meta næstu skref.“

Bæjaryfirvöld vilja einnig koma því á framfæri að útboð verksins fór fram í samræmi við lög um opinber innkaup. „Slíkt útboðsferli er umfangsmikið og ríkar kröfur gerðar til bjóðenda. Útboðsgögn voru unnin af verkfræðistofunni Mannvit[i] og yfirferð á þeim fór fram hjá Skipulags- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar og lögfræðistofunni Landslögum. Þá var jafnframt leitað til lögfræðistofunnar Landslaga um mat á tilboðum áður en tilboði í verkið var tekið.“

Íbúar og hagsmunaaðilar upplýstir um framgang verksins

Sveitarfélagið mun leitast við að upplýsa íbúa og hagsmunaaðila um framgang verksins eftir því sem á líður og er til að mynda verið að setja upp myndavélar sem taka upp framkvæmdirnar og er stefnt að því að birta á mánaðarfresti upptökur af framvindu verksins. 

Að öðru leyti gengur niðurrif mannvirkja innan Sementsreitsins vel. „Nú þegar er búið að rífa að mestu leðjuþró, dæluhús, blásarahús, rafsíuhús og sandfæriband en niðurrif[i] á þeim átti að vera lokið í byrjun febrúar,“ segir í tilkynningunni og er verkið því vel á undan áætlun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert