Stutt hlé á lægðagangi

Útlit er fyrir ágætis veður á morgun, en von er …
Útlit er fyrir ágætis veður á morgun, en von er á djúpum lægðum á fimmtudag og laugardag. Kort/Loftmyndir

Suðaustanátt verður austantil á morgun, 13-18 metrar á sekúndu fram á nótt og talsverð eða mikil rigning suðaustanlands. Gul viðvörun er í gildi á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og á miðhálendi. 

Annars má búast við fremur hægri suðaustlægri átt og lítilsháttar rigningu, en suðlægari átt og smá skúrum eða éljum í nótt og á morgun.

Það kólnar í veðri og hiti verður á bilinu 0-5 stig, en frystir norðaustantil um kvöldið.

Þá er vissara að fylgjast með veðurspá næstu daga þar sem landið er á braut dýpstu vetrarlægða næstu daga, að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings.

Frétt mbl.is: Röð illviðra skellur á landinu næstu daga

Samkvæmt spá­korti frá Evr­ópsku reikni­miðstöðinni er von á þremur suðaust­anill­viðrum með djúp­um lægðum og leys­ingu. Veðrið gæti orðið enn verra en það hef­ur verið á suðvest­ur­horni lands­ins í morg­un.

„Óviss­an í spán­um lýt­ur aðallega að tíma­setn­ingu þess hvenær þess­ar lægðir koma hérna upp að okk­ur,“ sagði Einar í samtali við mbl.is fyrr í dag. Líkt og spár gera ráð fyrir núna er von á djúpum lægðum á fimmtudag og aftur á laugardag.

Veðurvefur mbl.is 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert