Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi 11. janúar hét Oddur Þór Þórisson. Oddur Þór var fæddur árið 1996 og var búsettur að Hrafntóftum á Hellu.
Slysið varð með þeim hætti að tveir fólksbílar skullu saman á móts við Bitru í Flóahreppi í Árnessýslu.