Látinn maður fannst við Sandfell í Öræfum um hádegisbil í dag. Það voru björgunarsveitarmenn í Öræfum sem fundu manninn, en björgunarsveitir höfðu verið kallaðar til þegar farið var að grennslast fyrir um ástæður þess að bifreið hafði staðið mannlaus í einhvern ótiltekin tíma á bifreiðastæði skammt frá Sandfelli.
Greint er frá þessu á heimasíðu lögreglunnar á Suðurlandi.
Um er að ræða bílaleigubifreið í útleigu til erlends ferðamanns. Málið er í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi. Í tilkynningunni segir að ekki sé unnt að veita nánari upplýsingar að svo stöddu.
Frá Sandfelli liggur meðal annars vinsæl gönguleið upp á Hvannadalshnúk.