Sigríður ráðin framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu

Sigríður Kristjánsdóttir.
Sigríður Kristjánsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Sigríður Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu. Sigríður er fimmtug, með M.S.c í forystu og stjórnum frá háskólanum á Bifröst og hefur undanfarin ár starfað sem verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Hún er gift og nýtur barnaláns.  

17 umsóknir bárust um starfið. Hagvangur hélt utan ráðningarferlið, fyrir hönd stofunnar.

„Það er meðbyr með stofnun Vestfjarðarstofu að fá jafn margar góðar umsóknir um starf framkvæmdastjóra. Vestfjarðastofa þakkar öllum umsækjendum fyrir og óskar þeim hamingju og farsældar í framtíðinni.“ Þetta kemur fram í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert