Sundlaug og menningarmiðstöð í Úlfarsárdal boðin út

Sundlaug og menningarmiðstöð í Úlfarsárdal í Reykjavík verður boðin út.
Sundlaug og menningarmiðstöð í Úlfarsárdal í Reykjavík verður boðin út. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sundlaug og menningarmiðstöð í Úlfarsárdal verður boðin út. Þetta var samþykkt á síðasta fundi borgarráðs, að heimila umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar að bjóða út áframhaldandi framkvæmdir á skóla- og íþróttamannvirkjum í Úlfarsárdal.

Framkvæmdir hafa staðið yfir við skólamannavirki í Úlfarsárdal frá árinu 2015 og var fyrsti áfanginn, 820 fermetra leikskólabygging, tekinn í notkun haustið 2016. Þessi misserin er verið að byggja grunnskólann sem er 6.852 fermetrar að stærð. Skólinn verður tekinn í notkun í áföngum og er stefnt að því að fyrsti hluti hans verði tekinn í notkun í haust. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Hafist verður handa við að byggja menningarmiðstöð ásamt inni- og útisundlaug en einnig sameiginleg rými sem tengja grunnskólann, menningarmiðstöðina og sundlaugina. Áætlað er að þessi áfangi kosti 3.300 milljónir króna sem er með stærri útboðum hjá Reykjavíkurborg. Lagt er upp með að hefja framkvæmdir í apríl á þessu ári.

Áætlaður heildarkostnaður uppbyggingar í Úlfarsárdal er tæpir tólf milljarðar króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert