Björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu, Selfossi, Þorlákshöfn, Hveragerði og Eyrarbakka hafa staðið í ströngu á Suðurlandsveginum við Sandskeið í kvöld. Ökumenn vel á annað hundrað bíla hafa verið í vanda eftir að veður tók að versna á svæðinu á áttunda tímanum.
Frétt mbl.is: Rúmlega hundrað bílar sitja fastir
Samkvæmt upplýsingum frá Davíð Má Bjarnasyni, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, hafa rúmlega hundrað björgunarsveitamenn tekið þátt í verkefnum á svæðinu. Davíð segir í samtali við mbl.is að vonandi verði hægt að ljúka störfum, það er að lóðsa þá bíla sem þarf og koma þeim í bæinn, fyrir miðnætti. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi hefur yfirsýn með aðgerðum björgunarsveita á svæðinu.
Örtröð myndaðist þegar stór flutningabíll lenti í vanda og þveraði veginn vestan Litlu kaffistofunnar og komust því aðrir bílar ekki fram hjá. Á endanum tókst að koma bílunum fram hjá og fylgdu hópar björgunarsveitafólks bílalestinni áleiðis til Reykjavíkur.
Björgunarsveitir úr Árnessýslu keyrðu á móti sveitum frá Reykjavík, um Þrengslin og yfir Hellisheiði og leituðu af sér allan grun um að fleiri bílar væru í vanda á þeim slóðum. Engin slys hafa orðið á fólki.
Einhverjir bílar hafa verið skildir eftir og eru vegirnir enn lokaðir og verða áfram þangað til annað verður ákveðið af Vegagerðinni. Björgunarsveitarfólk mannar þær lokanir sem eru í gildi.
Slysavarnafélagið Landsbjörg ítrekar við vegfarendur að fylgjast með upplýsingum um færð og fara að fyrirmælum viðbragðsaðila. Appelsínugul viðvörun er enn í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og gul viðvörun í öðrum landshlutum. Veður verður áfram vont í nótt og getur vatnselgur valdið skaða ef ekki er hreinsað frá niðurföllum. Þá er fólki bent á að festa lausa muni sem gætu fokið.
Enn eru margar leiðir frá höfuðborginni lokaðar. Lokanir eru í gildi á Hellisheiði, um Þrengsli, Mosfellsheiði, Lyngdalsheiði, Holtavörðuheiði, Fróðárheiði og undir Hafnarfjalli. Þá er Suðurlandsvegur lokaður við Rauðavatn.
Veðurhorfur næsta sólarhringinn eru svohljóðandi:
Suðaustan 15-25 metrar á sekúndu vestan til og hvessir einnig austanlands seint í nótt. Snjókoma eða slydda og síðar rigning á láglendi, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 2 til 8 stig í nótt, mildast á annesjum norðan til.
Á morgun snýst í suðvestlæga átt með slyddu og síðar éljum um vestanvert landið fyrir hádegi, en hvöss sunnanátt austan til fram eftir degi og rigning sunnan jökla. Kólnar aftur, fyrst vestan til. Vægt frost víðast hvar annað kvöld.