Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNÁ er lent á Reykjavíkurflugvelli eftir um klukkutíma viðveru á Eiðsgranda í Vesturbæ Reykjavíkur. Þyrlan þurfti að lenda þar vegna éljagangs fyrr í dag.
Fyrir um klukkustund rofaði til í höfuðborginni og sætti áhöfn þyrlunnar lagi og lenti á Reykjavíkurflugvelli.