Ísland styrkir stofnanir SÞ

Guðlaugur Þór og Natalia Kanem, framkvæmdastýra UNFPA, undirrita samkomulagið.
Guðlaugur Þór og Natalia Kanem, framkvæmdastýra UNFPA, undirrita samkomulagið. Ljósmynd/Aðsend

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hitti í gær framkvæmdastjóra þriggja stofnana Sameinuðu þjóðanna sem íslensk stjórnvöld eru í samstarfi við, þ.e. Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), Palestínuflóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).

Hann undirritaði rammasamning um áframhaldandi stuðning við UNFPA og UNRWA en rammasamningur við UNICEF er nú þegar í gildi, að því er segir í fréttatilkynningu.

„Ísland hefur einsett sér að styrkja stoðir þessara mikilvægu stofnana með kjarnaframlögum og sveigjanlegu, fyrirsjáanlegu fjármagni,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningunni.

„Samningarnir sem við undirrituðum í dag [í gær] gera stofnunum betur kleift að bregðast við neyð þar sem þess er þörf en jafnframt skipuleggja starfsemina til lengri tíma svo fjármagnið nýtist sem best.“

Hann nefndi að þó að áherslurnar væru ólíkar björguðu allar þessar samstarfsstofnanirnar mannslífum á hverjum degi og tryggðu milljónum menntun og heilbrigðisþjónustu.

Peter Mulrean, forsvarsmaður UNRWA í New York, undirritaði samninginn fyrir hönd stofnunarinnar. Utanríkisráðherra ræddi við hann stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs og brýn störf UNRWA á svæðinu.

Guðlaugur Þór ásamt Peter Mulrean, forsvarsmanni UNRWA í New York.
Guðlaugur Þór ásamt Peter Mulrean, forsvarsmanni UNRWA í New York. Ljósmynd/Aðsend

13 milljónir Sýrlendinga þurfa aðstoð

Fimm milljónir palestínskra flóttamanna búa á Gaza, Vesturbakkanum, í Líbanon, Jórdaníu og Sýrlandi. Á hverju ári veitir UNRWA þremur milljónum þeirra heilbrigðisaðstoð og sér hálfri milljón barna fyrir menntun. Með átökunum í Sýrlandi hefur þörfin á aðstoð UNRWA aukist enn frekar.

Vegna langvarandi átaka þurfa nú 13 milljónir Sýrlendinga á aðstoð að halda. UNFPA tryggir aðgengi þúsunda kvenna að mæðravernd og fæðingaraðstoð auk þess að stuðla að öryggi og velferð kvenna og stúlkna á flótta.

Ein milljón Bandaríkjadala frá Íslandi

Samkomulagið sem Guðlaugur Þór og  Natalia Kanem, framkvæmdastýra UNFPA, undirrituðu í dag felur í sér milljón Bandaríkjadala framlag Íslands til UNFPA í Sýrlandi sem greitt verður á næstu fimm árum. Er það í samræmi við skuldbindingar Íslands um aðstoð við sýrlenska flóttamenn og áherslu stjórnvalda á mikilvægi þjónustu og réttindavörslu á borð við þá sem UNFPA veitir.

Þá hittu utanríkisráðherra og Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri landsnefndar UNICEF á Íslandi, varaframkvæmdastjóra UNICEF, Justin Forsyth. Ræddu þeir áframhaldandi stuðning íslenskra stjórnvalda og mögulega aðkomu einkageirans að starfi stofnunarinnar.

Á árinu 2016 tryggði stofnunin 11,7 milljónum barna á átakasvæðum aðgang að menntun, bólusetti 85 milljón börn við mislingum og aðstoðaði 4,5 milljón alvarlega vannærð börn.

Auk kjarnaframlags til UNICEF styðja íslensk stjórnvöld m.a. hreinlætisverkefni í Mósambík og heilbrigðisverkefni í Palestínu. Þegar saman eru talin framlög ríkisins og landsnefndarinnar skipar Íslandi í fjórða sæti framlagaríkja miðað við  höfðatölu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert