Togari í togi á leið í land

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti sjúkling af Rifi á Landspítalann seint í gærkvöldi en mjög slæmt veður var á þessum slóðum. Flugið gekk vel miðað við aðstæður. 

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er verið að draga togara í land sem fékk í skrúfuna í gær. Togarinn var við veiðar vestur af Faxaflóa þegar óhappið átti sér stað. Hægt miðar í land vegna slæms veðurs en ekkert amar að áhöfn skipsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert