Birtar verði auknar upplýsingar um kostnað

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Til skoðunar hefur verið undanfarna mánuði að auka upplýsingagjöf um kjör og starfskostnaðargreiðslur alþingismanna á vef Alþingis.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Steingrími J. Sigfússyni þingforseta sem send hefur verið til fjölmiðla vegna umræðu að undanförnu um málið. 

Fyrir hafi legið í drögum reglur um fyrirkomulagið og hefur í því sambandi verið horft til þess hvernig önnur þing hafa upplýsingagjöf um slík mál.

Markmiðið sé að engin leynd hvíli á almennum kjörum þingmanna og greiðslum til þeirra þannig að fullkomið gagnsæi ríki í þeim efnum.

Tilkynningin í heild:

„Alþingismönnum hafa síðustu daga borist margvíslegar fyrirspurnir um greiðslur tengdar starfi þeirra á Alþingi. Af því tilefni vill forseti Alþingis koma því á framfæri að til skoðunar hefur verið á undanförnum mánuðum, og rætt m.a. í forsætisnefnd Alþingis, að auka upplýsingagjöf um kjör og starfskostnaðargreiðslur alþingismanna þannig að aðgangur að þeim verði öllum auðveldur og þær birtar á vef þingsins. Fyrir hafa legið í drögum reglur um fyrirkomulagið og hefur í þeim efnum verið horft til þess hvernig önnur þing haga upplýsingum um þessi mál. Markmiðið er að engin leynd sé yfir neinu sem varðar almenn kjör og greiðslur til þingmanna og fullkomið gagnsæi ríki. – Þingmönnum er að auðvitað í sjálfsvald sett hvaða upplýsingum þeir koma sjálfir á framfæri um sín kjör, eins og verið hefur.

Alþingi hefur með markvissum hætti reynt að skapa góða umgjörð störf og kjör þingmanna, þar á meðal með siðareglum og reglum um hagsmunaskráningu þingmanna sem eru á vef þingsins. Sú aukna upplýsingagjöf sem í vændum er mun bætast þar við.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert