Diljá Mist aðstoðar Guðlaug Þór

Diljá Mist Einarsdóttir.
Diljá Mist Einarsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Diljá Mist Einarsdóttir hæstaréttarlögmaður hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og hefur hún störf í dag. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Diljá er með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og hún hefur starfað sem lögmaður hjá Lögmálum frá árinu 2011. Auk meistaraprófs í lögfræði er Diljá með LLM-gráðu í auðlindarétti og alþjóðlegum umhverfisrétti frá Háskóla Íslands.

Diljá var varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 2007-2009 og átti sæti í flokksráði Sjálfstæðisflokksins á sama tímabili. Diljá var varaformaður Heimdallar 2009-2010 og sat í stjórn Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 2016-17. 

Borgar Þór Einarsson er einnig aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert