Lenti á ljósastaur og utan vegar

Frá slysstað á Húsavík.
Frá slysstað á Húsavík. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Bíl var ekið á ljósastaur á Norðausturvegi á Húsavík og við það lenti hann utan vegar skömmu fyrir hádegi í dag.

Kona var í bílnum og slapp hún ómeidd frá slysinu.

Að sögn lögreglunnar á Húsavík missti ökumaðurinn stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum. 

Bíllinn skemmdist töluvert og var hann fjarlægður af slysstað með dráttarbíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert