Ekið var á gangandi vegfaranda á Hlíðarbraut á Akureyri um fjögurleytið í dag. Sjúkrabíll flutti vegfarandann til aðhlynningar og skoðunar á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Ekki liggur fyrir, að sögn lögreglunnar á Akureyri, hvort um alvarleg meiðsl hafi verið að ræða.
Ekki er mikil hálka á vegum á Akureyri eins og er, en sólin er mjög lágt á lofti og telur lögregla sólina mögulega hafa valdið blindu hjá ökumanninum.