Að hámarki greitt fyrir 15 þúsund km

Alþingismenn geta að hámarki fengið endurgreiðslu fyrir 15 þúsund kílómetra …
Alþingismenn geta að hámarki fengið endurgreiðslu fyrir 15 þúsund kílómetra sem þeir aka á eigin bíl á ári. mbl.is/Hari

Þingmenn munu að hámarki geta fengið endurgreiðslu fyrir 15.000 kílómetra akstri á eigin bíl á hverju ári samkvæmt breyttum reglum um þingfararkostnað sem forsætisnefnd Alþingis samþykkti í dag. 

Verða breytingar á þessum reglum birtar á vef Alþingis á morgun, en tilkynning um breytingarnar var send á fjölmiðla nú í dag.

Breytingarnar eru þríþættar. Í fyrsta lagi eru ákvæði um bílaleigubíla gerð skýrari, einkum fyrir þá þingmenn sem falla undir svokallaðan heimanakstur, þ.e. akstur til og frá heimili daglega um þingtímann. Það eru þingmenn sem búa í nágrenni Reykjavíkur (á Suðurnesjum, Vesturlandi, Árnessýslu o.s.frv.). Er akstur á eigin bifreiðum, sem kemur til endurgreiðslu, bundinn hámarki við 15.000 kílómetra.

Þá eru skýrari ákvæði um staðfestingargögn sett sem grundvöllur endurgreiðslu. Í þriðja lagi eru ný ákvæði um með hvaða skilmálum þingmenn geta notað bílaleigubíl. 

Forsætisnefnd samþykkti einnig að birta nánari upplýsingar um allan þingfararkostnað. Upplýsingarnar munu birtast á sérstakri síðu og snýr það að framtíðar-fyrirkomulagi þessara mála. Upplýsingar verða miðaðar við 1. janúar 2018 og verða uppfærðar mánaðarlega framvegis.

Segir í tilkynningunni að ýmis önnur atriði komi svo til athugunar síðar, þar á meðal frekari upplýsingagjöf um það sem liðið er. Unnið er að tæknilegum undirbúningi síðunnar, en vonast er til að birting upplýsinga, a.m.k. hluta þeirra, geti hafist næstu daga og komi til fullrar framkvæmdar á næstu tveim vikum eða svo, eftir því hvernig tæknilegri vinnu vindur fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert