Hlýindin munu vinna vel á klakanum

Svona verður úrkoman klukkan 16 á morgun, föstudag.
Svona verður úrkoman klukkan 16 á morgun, föstudag. Skjáskot/Veðurstofa Íslands

„Veðurkerfi gærdagsins hefur enn ekki yfirgefið okkur alveg,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands nú í morgun. Fram kemur að  kuldaskilin liggi enn yfir austasta hluta landsins og framan við þau er sunnanstormur, talsverð rigning og hlýtt. Skilin þokast í austurátt og verða komin austur af landi um hádegi. 

„Í dag situr landið í kalda loftinu handan kuldaskilanna. Það blæs úr suðri og verður hann allhvass víða um land eftir hádegi. Það er útlit fyrir éljagang og getur hann orðið nokkuð þéttur þegar verst lætur. Í norðausturfjórðungi landsins birtir upp þegar kemur fram á daginn.

Þá segir að nú í morgunsárið sé lægð í myndun á kunnuglegum slóðum við Nýfundnaland. „Spár gera ráð fyrir að þessi lægð dýpki langt suðvestur í hafi í dag, en færist síðan norðureftir til okkar á morgun. Það fer sem sagt að hvessa af hennar völdum fyrir hádegi á morgun og síðdegis er útlit fyrir suðaustanstorm eða -rok með rigningu, talsverðri á sunnanverðu landinu. Það hlýnar í veðri og hiti gæti orðið á bilinu 5 til 10 stig annað kvöld.“

Verður hlýrra en í gær

Séu spár um óveður morgundagsins bornar saman við illviðri gærdagsins má sjá að veðrið á morgun er eilítið hagstæðara hvað varðar flesta veðurþætti. Vindurinn er gróft á litið um einu gömlu vindstigi minni og ekki er spáð alveg eins miklum ákafa í úrkomunni. Það er einnig útlit fyrir að í veðrinu á morgun verði ca. 2 stigum hlýrra en í gær, sem þýðir að á morgun, verður stærstur hluti úrkomunnar rigning og lítið um slyddu og snjókomu. 

„Það getur verið erfitt að fóta sig á klakabunkum síðla vetrar. Ef við reynum að finna góðar fréttir fyrir einhverja í veðurspá dagsins, þá standa vonir til þess að hlýindin sem fylgja storminum á morgun muni ná að vinna vel á klakanum. Einnig má nefna að það kólnar hægt á laugardag, svo þá verður áfram hláka fram eftir degi. 

Að lokum má nefna að langtímaspár gefa vísbendingar um að í næstu viku verði grundvallarbreyting á veðurlagi. Þá er útlit fyrir að hæðir verði þaulsetnar kringum landið eða yfir því og að vindur verði ekki hvass og úrkoma með minna móti,“ segir í hugleiðingum veðurfræðingsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert