Tengivagn hafnaði á hliðinni

Óhappið varð rétt fyrir 12.
Óhappið varð rétt fyrir 12. mbl.is/Sunna

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og lögregla voru kölluð út á tólfta tímanum vegna flutningsbíls sem lenti í vanda í svokallaðri Ullarnesbrekku á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Þar er mjög hvasst að sögn vegfaranda.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu fór tengivagn, sem flutningabíllinn var með í eftirdragi, á hliðina.

Lögregla og slökkvilið eru á staðnum.
Lögregla og slökkvilið eru á staðnum. mbl.is/Sunna

Engan hefur sakað en unnið er að því að hreinsa upp olíu sem lak á veginn. Einhverjar tafir hafa orðið umferð. 

Tilkynning um óhappið barst rétt fyrir kl. 12. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert