Þrír ökumenn í vímu

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för þriggja ökumanna sem reyndust vera undir áhrifum áfengis eða fíkniefna frá því klukkan 23 í gærkvöldi þangað til tvö í nótt.

Sá fyrsti var stöðvaður í Breiðholti, annar í Hafnarfirði og sá þriðji í Kópavogi. Tveir þeirra óku undir áhrifum fíkniefna en einn var undir áhrifum áfengis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert