Bjart en kalt um helgina

Bjart verður en kalt í veðri víðast hvar á landinu …
Bjart verður en kalt í veðri víðast hvar á landinu um helgina, en búast má við einhverjum éljum norðan- og austanlands. mbl.is/Styrmir Kári

Spáð er köldu en björtu veðri víðast hvar á landinu um helgina, einkum sunnanlands. Útlit er fyrir norðaustan- og norðanátt á landinu næsta sólarhringinn, víða 8-15 metrum á sekúndu, en 15-20 í vindstrengjum suðaustan til á landinu.

Búast má við éljum norðan- og austanlands, en léttskýjað verður sunnan heiða. Þá dregur úr vindi annað kvöld. Frost verður á bilinu 0 til 7 stig, minnst syðst.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert