Fyrir liggur hvaða tvö lög heyja einvígi um það hvort þeirra verður framlag Íslands í Eurovision í Lissabon, höfuðborg Portúgals. Lögin tvö eru Our Choice með Ara Ólafssyni og í Stormi í flutningi Dags Sigurðssonar.
Lögin verða nú flutt aftur og hefst ný símakosning nú þar sem í ljós kemur hvort vinnur.
Our choice
Flytjandi: Ari Ólafsson
Lag: Þórunn Erna Clausen
Texti: Þórunn Erna Clausen
Í stormi
Flytjandi: Dagur Sigurðsson
Lag: Júlí Heiðar Halldórsson
Texti: Júlí Heiðar Halldórsson og Þórunn Erna Clausen