Nokkuð var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni en engin meiri háttar slys á fólki. Ökumaður sem var á ferð á Reykjanesbraut við Bónus dottaði undir stýri og vaknaði upp við að hann var að aka upp á umferðareyju.
Maðurinn reyndi að koma bifreið sinni á rétta braut en ók þá utan í umferðarskilti og var bifreiðin fjarlægð af vettvangi með dráttarbifreið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Auk þess varð nokkuð harður árekstur á Njarðarbraut þegar bifreið var ekið aftan á aðra. Ökumaður síðarnefndu bifreiðarinnar fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.