Stöðvuð með fíkniefni í leggöngunum

Fólkið var stöðvað við komuna til landsins í síðustu viku.
Fólkið var stöðvað við komuna til landsins í síðustu viku. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft til rannsóknar mál sem upp kom þegar eldri hjón komu til landsins með fíkniefni innvortis í síðustu viku. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Reyndist karlmaðurinn, sem er um sextugt, vera með fimmtán pakkningar af kókaíni innvortis og konan, á sextugsaldri, með tvær pakkningar af sama efni í leggöngunum. Um var að ræða samtals um 300 grömm af fíkniefnum.

Tollverðir stöðvuðu hjónin, sem eru hollensk, við komuna til landsins og voru þau handtekin. Rannsókn málsins er á lokastigi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert