Keyrði á kyrrstæðan bíl og stakk af

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglu barst tilkynning um umferðaróhapp á Langholtsvegi klukkan níu í morgun en þar var bifreið ekið á kyrrstæðan bíl. Ökumaður og farþegi stungu af en náðust skömmu síðar og voru vistaðir í fangageymslum.

Réttindalaus og ölvaður ökumaður var stöðvaður á Strandavegi, einnig klukkan níu í morgun, en hann ók vel yfir leyfðum hámarkshraða.

Tilkynnt var um margar brotnar rúður í Álhólsskóla og Digranesskóla í Kópavogi á tólfta tímanum í morgun. Lögregla rannsakar málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert