Tveir menn féllu í sjóinn

it
it mbl.is/Eggert

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar auk björgunarskips frá Skagaströnd voru kallaðar út um hálfníuleytið í morgun vegna tveggja manna er féllu í sjóinn við Stóru-Ávík.

Svo virðist sem mennnirnir hafi verið í klettum þegar annar þeirra fellur í sjóinn og hinn fer honum til bjargar en fellur þá sjálfur, að því er Slysavarnafélagið Landsbjörg segir í tilkynningu.

Rúmri hálfri klukkustund eftir að útkall barst eru fyrstu björgunarmenn komnir á staðinn og fóru þeir niður að mönnunum og náðu þeim upp. Voru þeir hraktir og kaldir eftir volkið í sjónum. 

Rúmlega 20 björgunarmenn tóku þátt í aðgerðinni og voru fleiri á leið á svæðið en voru afturkallaðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert