Kleifaheiði á Vestfjörðum hefur verið lokað tímabundið vegna flutningabíls sem þverar veginn. Ekki er vitað um frekari tildrög slyssins. Greint er frá lokuninni á vefsíðu Vegagerðarinnar.
Hálka eða hálkublettir eru á flestum fjallvegum á Vestfjörðum en greiðfært á láglendi. Illfært og hvasst er á heiðinni, 19 metrar á sekúndu, og 1 stigs frost.