Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Patreksfirði missti ökumaður flutningabíls stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að bíllinn valt og þveraði veginn. Ökumaðurinn slapp ómeiddur.
Búið er að fjarlægja flutningabílinn og opna fyrir umferð um veginn. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er snjóþekja, krapi eða hálkublettir á flestum fjallvegum á Vestfjörðum en greiðfært á láglendi.