322 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur á viku

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á Norðurlandi vestra stöðvaði 322 ökumenn í síðustu viku og kærði vegna hraðaksturs. Þessi fjöldi hraðakstursmála er eitthvað sem ekki hefur sést áður á þetta skömmum tíma og hvað þá þessum árstíma, að því er segir í færslu embættisins á Facebook.

Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og eitt alvarlegt umferðaróhapp varð þar sem bifreið fór út af veginum og slasaðist ökumaðurinn talsvert. Var hann fluttur með þyrlu á Landspítalann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert