Bílvelta í Breiðholti

Tveir dælubílar fóru á slysstað í Breiðholtinu og fjórir sjúkrabílar.
Tveir dælubílar fóru á slysstað í Breiðholtinu og fjórir sjúkrabílar. mbl.is/Eggert

Einn var fluttur nokkuð slasaður eftir bílveltu í Breiðholti upp úr hádegi í dag. Tilkynnt var um bílveltuna stundarfjórðung yfir eitt en hún varð á gatnamótum Höfðabakka og Fálkabakka. 

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru fjórir í bílnum þegar slysið varð en aðeins einn þeirra var fluttur á sjúkrahús. Nokkur viðbúnaður var hjá slökkviliðinu vegna málsins en tveir dælubílar voru sendir á vettvang auk fjögurra sjúkrabíla.

Störfum slökkviliðs er lokið á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert