Tveir Íslendingar fengu 2,8 milljónir

Enginn var með allar tölur auk Vikingatölu í Víkingalottó útdrætti kvöldsins og flyst því 1. vinningur sem nam rúmlega 3,7 milljörðum króna yfir til næstu viku.

Þrír skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver um sig rétt tæplega 23 milljónir, tveir miðanna voru keyptir í Danmörku og einn í Noregi. 

Tveir skiptu svo með sér hinum al-íslenska 3. vinningi og hlýtur hvor þeirra rúmlega 2,8 milljónir í vinning. Annar miðinn er í áskrift en hinn var keyptur í Olís í Mosfellsbæ.  

Einn var með allar réttar tölur og í réttri röð í Jóker og hlýtur hann vinning upp á 2 milljónir, miðinn var keyptur í Söluskála ÓK í Ólafsvík. Þá var einn með fjórar réttar tölur í Jóker og fær 100 þúsund kall og var sá miði keyptur í Shellskálanum í Þorlákshöfn.

Tölur kvöldsins voru: 3 5 7 8 14 21, en Vikingatalan var: 3

Jókertölur kvöldsins voru: 7 9 6 1 6 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert