Banaslys við Vík

Laust fyrir klukkan 20 í gærkvöld varð banaslys á þjóðvegi 1, skammt austan við Vík í Mýrdal við svokallaðan Kötlugarð. Þrír voru í bifreiðinni sem fór nokkrar veltur. Ökumaður bílsins var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans en var úrskurðaður látinn í nótt. Tveir farþegar voru í bifreiðinni sem slösuðust minna en voru fluttir með sjúkrabifreiðum á slysadeild í Reykjavík.

Svo virðist sem allir hafi verið með öryggisbelti þegar slysið varð, segir í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Fjórir látist í umferðarslysum í umdæminu í ár

Tildrög slyssins eru enn ókunn og til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi, ásamt tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem einnig kom á vettvang.

Mikill viðbúnaður var á vettvangi vegna slyssins frá lögreglu, slökkviliði í Vík, sjúkraflutningum á Suðurlandi og Landhelgisgæslunni.

Það sem af er ári hafa fjórir látið lífið í þremur umferðarslysum í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert