Reykur frá eldsvoðanum í húsi í Miðhrauni í Garðabæ sást víða að í dag enda bjart veður. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang og var enn unnið að því að slökkva eldinn um klukkan 11 í morgun.
Hér að neðan má sjá myndir sem ljósmyndarar mbl.is tóku á vettvangi sem og fjölda mynda sem lesendur sendu.
Lögreglumaður ræðir við mann á vettvangi. Lögreglan hafði í nógu að snúast við að biðja óviðkomandi að fara af vettvangi.
mbl.is/Eggert
Á loftmyndum sést vel að eldurinn var mestur í miðju húsinu.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Eldurinn teygði sig út um glugga hússins.
mbl.is/Eggert
Ljósmynd tekin kl 9:10 í Hafnarfirði.
Ljósmynd/Davíð Einarsson
Slökkviliðsmenn glíma við mikinn eld í húsnæði Icewear og Geymslur.is í Miðhrauni.
mbl.is/Eggert
Loftmynd sem tekin var klukkan 8.20 í morgun.
Ljósmynd/Sigurður Egill
Lögreglumaður biður óviðkomandi að yfirgefa svæðið.
mbl.is/Eggert
Svartan reyk lagði frá húsinu í morgun.
mbl.is/Eggert
Fjöldi slökkviliðsmanna á vettvangi.
Slökkviliðsmenn brjóta sér leið að eldinum í miðju hússins.
mbl.is/Ásdís
Eldtungur frá hurð á byggingunni.
mbl.is/Ásdís
Reykjarmökkurinn var þykkur og svartur fyrst eftir að eldurinn kom upp.
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
Frá eldsvoðanum í Miðhrauni.
Ljósmynd/Eiríkur Hafdal
Slökkviliðið að störfum í morgun.
mbl.is/Eggert
Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna eldsvoðans.
mbl.is/Eggert
Í húsinu er m.a. að finna verslun Icewear.
mbl.is/Ásdís
Reykurinn sást víða að, m.a. út um glugga Húss verslunarinnar í Kringlunni.
mbl.is
Slökkviliðsmenn stóðu í ströngu við að slökkva eldinn.
mbl.is/Eggert
Slökkviliðsmenn að störfum á vettvangi eldsvoðans í Garðabæ.
mbl.is/Jóhann
Svæðið var í morgun girt af svo að slökkviliðsmenn hefðu rými til að sinna störfum sínum.
mbl.is/Jóhann
Svartur reykjarmökkur umlykur slökkviliðsmenn á vettvangi.
mbl.is/Eggert
Mikill eldur var í miðju hússins.
mbl.is/Ásdís