Búið er að stækka lokunarsvæði til austurs við iðnaðarhúsnæðið við Miðhraun 4 í Garðabæ þar sem mikill bruni er. Vindáttin er nú til suðausturs og yfir það svæði þar sem fólk hafði áður safnast saman á. Samkvæmt blaðamanni mbl.is á svæðinu eru flestir sem fylgdust með í morgun og starfsmenn sem höfðu verið í húsnæðinu og nærliggjandi húsum farnir af vettvangi.
Í húsinu voru starfsstöðvar fataframleiðandans Icewear og Geymslur.is, en það fyrirtæki býður upp á geymslur til leigu. Samkvæmt upplýsingum blaðamanns reyndu slökkviliðsmenn að verja þann hluta hússins sem Geymslur.is eru í húsinu en nú standi þar svartur reykur upp úr rýminu, sem er í suðurenda hússins.
Segir blaðamaður að þar rjúki rækilega upp úr og ef að munir séu ekki þegar brunnir séu væntanlega miklar reyk- og vatnsskemmdir, en slökkviliðið hefur dælt þar miklu vatni. Ljóst sé að fólk hafi orðið fyrir tjóni sem þar eigi muni.
Einhverjir eigendur muna í húsinu voru mættir fyrir utan það í morgun að sögn blaðamanns.
Þak hússins er farið að síga verulega og hefur slökkviliðið varað við að það gæti hrunið. Hafa slökkviliðsmenn fært sig um set við húsið eftir að vindáttin breyttist.
Slökkviliðsmenn eru nú uppi á þaki Icewear-byggingarinnar og vinna nú að því að reyna hleypa reyknum betur út úr húsinu og hafa betri stjórn á því svæði þar sem eldar loga. Slökkviliðsmaður sagði í samtali við blaðamann mbl.is að húsið væri mjög erfitt viðureignar.