Einn miðahafi var með allar tölur réttar þegar dregið var út í Lottó í kvöld. Sá heppni hlýtur rúmlega 15,5 milljónir í vinning, en miðinn var keyptur í Krambúðinni á Selfossi.
Enginn var með fjórar réttar tölur að þessu sinni.
Vinningstölurnar voru: 6, 10, 21, 25, 29.
Bónustalan: 40
Einn var líka með allar réttar tölur í réttri röð í Jókernum að þessu sinni og fær sá tvær milljónir króna í sinn hlut, en miðinn var keyptur í áskrift. Fjórir voru svo með fjórar réttar tölur í réttri röð og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Var einn miðanna keyptur á Olís Siglufirði, en hinir þrír voru í áskrift.
Jókertölur: 8, 8, 8, 3, 7.