Vesturbæjarlaug lokuð um tíma vegna kúks

Sundlauginni var lokað í fjórar klukkustundir á meðan þrif stóðu …
Sundlauginni var lokað í fjórar klukkustundir á meðan þrif stóðu yfir. Mynd úr safni. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

„Þetta gerðist hérna rétt fyrir klukkan 10 í morgun. Það hefur líklega verið eitthvað lítið barn sem kúkaði í laugina. Við lokuðum henni í fjóra tíma,“ segir Fríða Björk Einarsdóttir, vaktstjóri í Vesturbæjarlaug.

Nútíminn greindi frá því fyrr í dag að sundlauginni í Vesturbæjarlaug hefði verið lokað vegna kúks í lauginni. Í tilkynningu sem hékk á hurð í afgreiðslu laugarinnar sagði „Því miður var kúkað í laugina svo hún er lokuð til kl 14:00 en pottar eru opnir.“

Fríða Björk segir svona atvik ekki algeng en þegar þau koma upp sé klór settur í laugina og hreinsibúnaður vinni svo sína vinnu.

Aðspurð segir hún laugargesti hafa tekið vel í uppákomuna. „Það hafa allir skilning á því að lítil börn geta misst frá sér eitthvað.“

Hér að neðan má sjá Instagram-færslu eins sundlaugargests.

Skellur dagsins 🤭

A post shared by Erla (@erla_gisla) on Apr 7, 2018 at 4:14am PDT

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert