Sunna Elvira komin til Íslands

Sunna Elvira var flutt með sjúkraflugi frá Spáni til Íslands …
Sunna Elvira var flutt með sjúkraflugi frá Spáni til Íslands í dag. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson

Sunna Elvira Þorkelsdóttir er komin til Íslands. Sunna Elvira var flutt með sjúkraflugi frá Spáni í dag og lenti vélin skömmu fyrir klukkan fimm á Keflavíkurflugvelli.

Sjúkrabíll og lögreglubíll voru við flugskýlið þar sem vélin lenti. Leiðir skildi fyrir utan flugvöllinn og hélt sjúkrabíllinn þá áleiðis til Reykjavíkur þar sem Sunna Elvira var flutt á endurhæfingardeild Landspítalans á Grensási. 

Sjúkrabíll beið Sunnu Elviru við komuna til landsins.
Sjúkrabíll beið Sunnu Elviru við komuna til landsins. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson

Sunna lamaðist eft­ir fall á Spáni í janú­ar og hefur dvalið á sjúkra­húsi þar í landi síðan þá. Sunna var sett í far­bann í kjöl­far hand­töku eig­in­manns henn­ar, Sig­urðar Krist­ins­son­ar, sem tal­inn var eiga aðild að fíkni­efnainn­flutn­ingi. Far­bann­inu var aflétt í síðustu viku og fékk Sunna vegabréf sitt afhent í fyrradag.

Lögreglubíll fylgdi sjúkrabílnum frá flugbrautinni að þjóðveginum.
Lögreglubíll fylgdi sjúkrabílnum frá flugbrautinni að þjóðveginum. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson

Frétt mbl.is: Sunna hefur endurheimt vegabréfið

Nú tekur við endurhæfing á Íslandi. Sunna Elvira sagði í samtali við mbl.is á laugardag að hennar bíði pláss á endurhæfingardeild Landspítalans á Grensási.

Sunna á flugvellinum í Sevilla.
Sunna á flugvellinum í Sevilla. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert