Það verður austan- og suðaustanátt á landinu næsta sólarhringinn, 5-13 metrar á sekúndu en hvassast með suðurströndinni og á annesjum vestantil þar sem búast má við 10-18 metrum á sekúndu.
Sólin mun líklega vera í felum á morgun þar sem skýjað verður og sums staðar skúrir um landið sunnan og vestanvert en skýjað með köflum eða léttskýjað annars staðar. Hiti verður á bilinu 2 til 9 stig að deginum, en talsvert frost á köflum í innsveitum í nótt.
Gera má ráð fyrir talsverðum hlýindum þegar líða fer á vikuna og er útlit fyrir að miðvikudagur og fimmtudagur verði þeir hlýjustu í vikunni. Spár gera hins vegar ráð fyrir því að það kólni dálítið um næstu helgi.
Veðurhorfur næstu daga:
Á miðvikudag:
Suðaustan 10-15 m/s og rigning á vestanverðu landinu en hægari og þurrt austantil en smá skúrir með suðausturströndinni. Hiti víða 2 til 8 stig.
Á fimmtudag:
Suðlæg átt, 5-10 m/s og rigning með köflum á vestanverðu landinu annars víða hægviðri og þurrt. Hiti 3 til 8 stig.
Á föstudag:
Vaxandi suðaustanátt, 8-13 m/s síðdegis. Rigning með köflum en bjartviðri norðan jökla. Hlýnar heldur í veðri.