Tólf teknir á strætóakreinum

Eins og sést á þessari ljósmynd frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, …
Eins og sést á þessari ljósmynd frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, þá eru dæmi um ökumenn sem aka á sérmertkum akreinum fyrir hópferðabíla. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kærði í morgun 12 ökumenn fyrir að nota strætóakreinar, en það eru akreinar sem eru einvörðungu fyrir ökutæki sem eru með hópferðaleyfi.

„Þessir ökumenn mega prísa sig sæla að hafa fengið sektina nú en ekki síðar, en sektin mun hækka eftir nokkra daga í 20 þúsund krónur,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert