Sögur, verðlaunahátíð barnanna, var haldin í Hörpu í kvöld við góðar undirtektir. Bækunar Amma best og Kiddi klaufu hlutu Bókaverðlaun barnanna 2018, Guðrún Helgadóttir hlaut Sögusteininn, heiðursverðlaun IBBY á Íslandi og Blái hnötturinn var valin besta leiksýningin.
Þá var Jón Jónsson valinn sjónvarpsstjarna ársins, B.O.B.A. lag ársins og Loforð besta leikna efnið.
Þættirnir Skólahreysti og Fjörskyldan voru valdir besta sjónvarpsefnið og Daði Freyr var kjörinn tónlistarflytjandi ársins.