Þarf að greiða tæpar 100.000 kr.

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði för erlends ferðamanns sem mældist aka á 153 km hraða á Reykjanesbraut nýverið, en þar er hámarkshraði 90 km á klst. Þarf ökumaðurinn að greiða 97.500 kr. í sekt.

Að sögn lögreglu hafa alls 14 ökumenn verið sektaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum.

Þá voru átta ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefnaaksturs. Þrír þeirra voru án ökuréttinda, segir lögregla.

Hún bendir á, að alltof algengt sé að ökumenn virði ekki stöðvunarskyldu, leggi bifreiðum sínum ólöglega eða tali í síma án handfrjáls búnaðar. Eitt tilvik brota á umferðarlögum er einu tilviki of mikið og viðkomandi eru sektaðir fyrir slík brot eins og kunnug er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert