Saminganefndir Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármála- og efnahagráðherra fyrir hönd ríkissjóðs undirrituðu kjarasamning á fimmta tímanum í gær samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissáttasemjara.
Málinu var vísað til ríkissáttasemjara 1. febrúar en með samþykkt samningsins er komið í veg fyrir að vinnustöðvun sem boðuð var 5. apríl komi til framkvæmda.