Rannsókn Skáksambandsmálsins enn í gangi

Lögregla aflar enn gagna í Skáksambandsmálinu svo nefnda.
Lögregla aflar enn gagna í Skáksambandsmálinu svo nefnda. mbl.is/Golli

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur enn að því að afla gagna í Skáksambandsmálinu svo kallaða. Þetta staðfestir Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn.

„Það er enn til rannsóknar,“ segir hann og kveður vinnuna ganga vel. Ekki liggi þó fyrir hvenær málið verði sent á ný til héraðssaksóknara, né heldur hvort og þá hvenær ákæru sé að vænta.

Mál Sig­urðar Krist­ins­son­ar, sem nú sætir farbanni eftir 12 vikna gæsluvarðhald, vegna þátt­ar síns í þessu umfangsmikla fíkni­efna­máli, var ný­lega sent aft­ur til lög­regl­unn­ar til frek­ari gagna­öfl­un­ar.

Sig­urður er eig­inmaður Sunnu El­viru sem sætti far­banni um nokk­urra vikna skeið, eft­ir að hafa  lam­ast við fall á heim­ili sínu á Spáni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert