„Þetta eru engar andstæður“

Sigurður Ingi í Færeyjum í dag.
Sigurður Ingi í Færeyjum í dag. Ljósmynd/AÐsend

„Efnahagsuppbygging og umhverfisvernd eru engar andstæður,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í ávarpi sínu í opnunarathöfn Arctic Circle Forum í Þórshöfn í Færeyjum í dag.

Sigurður sagði að þetta tvennt yrði að fara saman svo mætti tryggja sjálfbæra þróun og lífsafkomu fólks á norðurslóðum.

Sigurður lagði meðal annars áherslu á mikilvægi samganga og fjarskipta til að tengja saman strjálbýl svæði og gera íbúum kleift að nýta tækifæri framtíðar.

Sigurður sagði Arctic Circle nýtast vel sem vettvangur fyrir samtal og samstarf milli ríkisstjórna, sveitarfélaga, atvinnulífs og háskóla. „Vísinda- og stjórnmálasamstarf hefur þegar náð miklum árangri innan vébanda Norðurskautsráðsins en við getum gert enn betur í að auka efnahagssamvinnu og viðskipti á þessu svæði,“ sagði Sigurður Ingi.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert