Hæstiréttur staðfestir milljarðadóm yfir Milestone-mönnum

Karl Wernersson og Guðmundur Ólason í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Karl Wernersson og Guðmundur Ólason í Héraðsdómi Reykjavíkur. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Hæstiréttur staðfesti í dag að Karli og Steingrími Wernerssonum og Guðmundi Ólasyni beri að greiða þrotabúi Milestone 5,2 milljarða auk vaxta og verðbóta vegna millifærslna sem gerðar voru á reikning Ingunnar Wernersdóttur, systur bræðranna. Með millifærslunum létu þeir Milestone fjármagna kaup sín á hlutafé Ingunnar í félaginu.

Með dómi sínum staðfesti Hæstiréttur dóm héraðsdóms, en þremenningarnir höfðu auk þess hlotið fangelsisdóm vegna viðskiptanna. Hæstiréttur staðfesti einnig sýknudóm yfir Ingunni, en skiptastjóri Milestone hafði farið fram á að hún yrði einnig dæmd til að greiða upphæðina.

Guðmund­ur var fram­kvæmda­stjóri Milest­one á þess­um tíma sem greiðslurn­ar voru innt­ar af hendi og færðar í bók­hald og var með prókúru fyr­ir fé­lagið. Bræðurn­ir voru aft­ur á móti eig­end­ur þess.

Samkvæmt upplýsingum frá skiptastjóra Milestone fyrir ári síðan var upphæð kröfunnar komin upp í um 10 milljarða með vöxtum og verðbótum.

Guðmundur, Steingrímur og Karl hafa allir verið lýstir gjaldþrota eftir að dómur féll í málinu í héraði í fyrra.

Steingrímur Wernersson
Steingrímur Wernersson mbl.is/Rósa Braga

Í febrúar á þessu ári dæmdi Hæstiréttur félagið Aurláka ehf., sem er í eigu Karls, til að greiða 970 milljónir vegna sölunnar á lyfjaversluninni Lyfjum og heilsu sem seld var frá Milestone til Aurláka í mars árið 2008. Þá þarf hann einnig að greiða þrotabú Háttar ehf. 47 milljónir, en Hæstiréttur vísaði málinu frá í byrjun mánaðar og stendur því dómur héraðsdóms sem hafði dæmt Karl til að greiða upphæðina.

Í fyrra var svo greint frá því að Lyf og heilsa, sem var í eigu Karls, væri komin í eigu sonar hans, en það kom fram í endurskoðuðum ársreikningi félagsins sem var skilað inn til fyrirtækjaskrár degi eftir að Karl var dæmdur í fangelsi í Milestone-málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert