Sviptur ellefu hrossum

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Matvælastofnun hefur tekið 11 hross úr vörslu umráðamanns á bæ á Suðurlandi. Ástæða vörslusviptingar er að kröfum stofnunarinnar um bætta fóðrun hefur ekki verið sinnt.

Undanfarna mánuði hefur Matvælastofnun ítrekað gert kröfu um bættan aðbúnað hrossa á bænum, flokkun hrossa eftir holdafari og sérstaka fóðurgjöf til þeirra sem mest þurfa á því að halda, án árangurs. Talin var hætta á varanlegum skaða ef fóðrun hrossa og aðstæður þeirra yrðu ekki bættar.

Hrossin voru tekin úr vörslu umráðamanns og verða þau fóðruð á kostnað hans, að því er fram kemur á vef Matvælastofnunar.

Áfram er gerð krafa um bætta aðstöðu á bænum þannig að öllum hrossum sé tryggður nægur aðgangur að fóðri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert