Vantraustsyfirlýsingin stendur óhögguð

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. mbl.is/Hanna

Vantraustsyfirlýsing VR í garð Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, stendur, en stjórnarmönnum VR er frjálst að hafa sínar skoðanir. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sendi frá sér í dag.

Gylfi sendi fréttatilkynningu frá sér í gær þar sem hann sagði Ragnar Þór hafa blekkt stjórn­ar­menn VR með ósann­ind­um og þeir hefðu því lýstu yfir van­trausti á sig á röngum forsendum.

Ragnar Þór segir samþykkt stjórnar VR hins vegar standa óhaggaða. „Sú yfirlýsing var samþykkt af 11 stjórnarmönnum af 15, en tveir tóku ekki afstöðu til málsins og tveir voru á móti. Mikil samstaða er á meðal þeirra stjórnarmanna VR sem tóku afstöðu með yfirlýsingunni,“ segir í tilkynningunni.

Forseti ASÍ njóti ekki trausts VR til að leiða viðræður við stjórnvöld eða Samtök atvinnulífsins og muni ekki tala fyrir VR.

„Einnig vill formaður og mikill meirihluti stjórnar koma á framfæri að engin ólga er innan stjórnar vegna málsins þótt óánægju kunni að gæta hjá þeim tveimur sem voru á móti. Það er ekkert óeðlilegt að tekist sé á innan verkalýðshreyfingarinnar og að ekki séu allir sammála í 15 manna stjórn. Stjórnarstarfið hefur gengið vel hingað til og ekki er óeðlilegt að teknar séu ákvarðanir með þeim hætti sem gert var, utan formlegs stjórnarfundar, enda fjölmörg dæmi um slíkt í stórum sem smáum málum innan stjórnar VR gegnum tíðina.“

Stjórnarmönnum í VR sé frjálst að hafa sínar skoðanir og tjá sig um þau opinberlega, en rétt sé að halda því til haga að meirihluti stjórnar standi á bak við yfirlýsinguna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert