Var látinn borga fyrir umferðarskilti

mbl.is/Hjörtur

Erlendur ferðamaður sem var að fara í gegnum vopnaleit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni reyndist vera með íslenskt umferðarskilti í fórum sínum. Um var að ræða skilti sem gaf til kynna að bifreiðastöður væru bannaðar.

Í samtali við lögreglumann úr flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum kvaðst ferðalangurinn hafa keypt skiltið af farandsala í vegkanti milli Hafnar í Hornafirði og Víkur í Mýrdal og að hann hefði greitt 3.000 krónur fyrir skiltið. Í Leifsstöð var hann hins vegar látinn afsala sér skiltinu, sem fer til áhaldahúss Reykjanesbæjar, að því er segir í dagbók lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert