Mikið álag er nú á Landspítalanum, einkum á bráðamóttökunni í Fossvogi vegna mikils fjölda sjúklinga sem leitað hefur til spítalans síðustu daga. Á bráðamóttöku Landspítala er sjúklingum forgangsraðað eftir bráðleika.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá spítalanum. En töluvert álag myndaðist einnig á spítalanum fyrir um hálfum mánuði, sjá neðangreinda frétt.
Fram kemur í tilkynningunni, að við þær aðstæður sem nú séu á spítalanum megi gera ráð fyrir að þeir sem ekki séu í bráðri þörf þurfi að bíða þjónustu eða verði vísað á heilsugæslustöðvar eða Læknavaktina á Smáratorgi að aflokinni forskoðun.
Flestar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu bjóða opna síðdegismóttöku og Læknavaktin á Smáratorgi er opin til kl. 23:00.