Skömmu fyrir miðnætti var tilkynnt um innbrot í kaffihús við Laugalæk en þar var brotin rúða og farið inn. Maður sást hlaupa frá vettvangi en ekki er vitað hverju var stolið, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Á sjöunda tímanum í gær var maður handtekinn við Laufásveg grunaður um innbrot í bifreið og ölvunarakstur. Hann er vistaður í fangageymslu lögreglunnar vegna rannsóknar málsins.
Um miðjan dag í gær var maður handtekinn fyrir þjófnað í verslun í Skeifunni. Hann er vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar á málinu.
Fjórir ökumenn voru stöðvaðir fyrir ölvunarakstur í gærkvöldi og nótt í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tveir þeirra reyndust án ökuréttinda þar sem þeir hafa áður verið sviptir þeim.