Fótbrutu mann á sextugsaldri

Tveir menn á þrítugsaldri eru grunaðir um að hafa ráðist …
Tveir menn á þrítugsaldri eru grunaðir um að hafa ráðist að manni á sextugsaldri á Akureyri í nótt. mbl.is/Hjörtur

Verið er að yfirheyra tvo karlmenn á þrítugsaldri sem grunaðir eru um að hafa fótbrotið karlmann á sextugsaldri á Akureyri í nótt. Þetta fæst staðfest hjá lögreglunni á Akureyri.

Mennirnir eru grunaðir um að hafa ráðist á manninn á Hafnarstræti á Akureyri í nótt með þessum afleiðingum. Ekki er vitað hvað mönnunum gekk til.

Bíladagar fara fram núna um helgina á Akureyri. Alls gistu fjórir fangageymslur í nótt. Til viðbótar við meinta árásarmenn var einn vegna vímuástands og annar sem óskaði eftir gistingu þar sem hann átti í engin hús að venda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert